1. Aðilar
Leigusali:
Veisló
Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir, kt. 1010892909, Mánabraut 2
(hér eftir nefnd „Leigusali“)
Leigutaki:
Sá aðili sem samþykkir samning þennan við kaup eða undirritun
(hér eftir nefndur „Leigutaki“)
Sameiginlega nefndir „Aðilar“.
2. Gildistaka og samþykki
Samningur þessi tekur gildi við skriflega eða rafræna undirritun, eða við bókun á þjónustu. Með undirritun samnings þessa staðfestir leigutaki að hann hafi kynnt sér efni samningsins og viðeigandi viðskiptaskilmála leigusala, sem aðgengilegir eru á vefsíðu leigusala, og skuldbindur sig til að fara eftir þeim.
3. Efni samnings
Leigutaki leigir myndavéla- og upptökubúnað fyrir tiltekinn viðburð, svo sem brúðkaup, afmæli, árshátíð o.s.frv.
Til búnaðar samkvæmt samningi þessum getur meðal annars talist:
- Myndavél
- Minniskort
- Rafhlöður
- Hleðslubúnaður
- Annar fylgibúnaður
Allur slíkur búnaður telst „Búnaður“ samkvæmt samningi þessum.
4. Leigutími, afhending og skil
Leigutími er að jafnaði frá fimmtudegi til sunnudags, nema samið sé sérstaklega um annað.
Afhending búnaðar fer að jafnaði fram á heimili seljanda skv. samkomulagi.
Búnaðinum á að skila fyrir kl. 22.00 á sunnudegi eða eftir nánari samkomulagi. Að loknum leigutíma skal skila búnaðinum í sama ástandi og hann var í við upphaf leigutímans.
Fari skil fram eftir umsaminn leigutíma þarf leigutaki að greiða 20.000 kr. gjald fyrir hvern dag framyfir skiladag.
Leigusali áskilur sér rétt til að skoða búnað eftir skil áður en ástand hans er samþykkt.
5. Myndefni
Leigusali varðveitir myndefni sem verður til við notkun búnaðar í 60 daga frá skilum búnaðar til leigusala. Leigutaki getur óskað eftir afriti af myndefninu innan þessa tímabils, enda sé það enn tiltækt hjá leigusala.
Að liðnum 60 dögum er leigusala heimilt að eyða myndefninu varanlega og ber enga ábyrgð á frekari varðveislu þess eða endurheimt.
Myndefnið getur verið unnið af þriðja aðila sem hefur lögheimili utan Evrópskrar lögsögu.
6. Greiðslur og trygging
Greiðsla fyrir leigu skal fara fram að fullu við bókun.
Leigutaki skal jafnframt greiða 100.000 kr. tryggingu við afhendingu búnaðar. Tryggingin fæst endurgreidd innan 48 klukkustunda frá skilum sé búnaðurinn í lagi við skil.
Verði tjón á búnaðinum, vanti hluta hans eða sé honum ekki skilað á umsömdum tíma, er leigusala heimilt að halda eftir tryggingarfé að hluta eða öllu leyti. Leigusali skal tilkynna leigutaka svo fljótt sem verða má hvort hann hyggst halda eftir tryggingarfénu.
Ef leigutaki greiðir ekki tryggingarfé við afhendingu er leigusala heimilt að neita afhendingu búnaðar. Í slíkum tilvikum fellur bókun niður af hálfu leigutaka og fæst leiga ekki endurgreidd.
7. Ástand og notkun búnaðar
Með undirritun sinni staðfestir leigutaki að hafa móttekið og kynnt sér leiðbeiningar um notkun og meðferð hins leigða búnaðar. Leigutaki ber ábyrgð á því að farið sé að réttum öryggisreglum og notkunarleiðbeiningum frá framleiðanda, og eftir atvikum leigusala, við notkun, uppsetningu, frágang og flutning búnaðarins.
8. Ábyrgð og áhætta
Búnaður er leigður út í því ástandi sem hann er í við afhendingu, nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Allt tjón sem verður á búnaðinum á leigutímanum er alfarið á ábyrgð leigutaka. Leigutaki ber einnig fulla ábyrgð er búnaður tapast eða honum er stolið úr vörslu hans.
Verði búnaður fyrir tjóni er leigusala heimilt að láta að gera við hann á kostnað leigutaka.
Ef búnaður týnist, er stolið eða skemmist að því marki að ekki svari kostnaði að mati leigusala að gera við hann, ábyrgist leigutaki að greiða leigusala fullt endurstofnverð búnaðarins án tillits til aldurs eða slits á honum. Þar til nýr búnaður hefur verið útvegaður í stað þess týnda eða eyðilagða skal leigutaki borga fulla leigu, auk alls afleidds tjóns sem leigusali kann að verða fyrir vegna eyðileggingar/hvarfs hins leigða búnaðar.
9. Bilanir
Hafi leigutaki einhverjar kvartanir fram að færa varðandi búnaðinn skal hann koma þeim á framfæri við leigusala við upphaf leigutíma og gefa leigusala færi á að gera úrbætur.
Leigutaki skal tilkynna leigusala um hverskonar bilanir á búnaðinum án tafar. Leigutaki má ekki undir neinum kringumstæðum reyna að gera við bilanir á hinum leigða búnaði án þess að hafa fengið til þess sérstakt leyfi frá leigusala.
Ef búnaður er bilaður og það liggur fyrir að bilunin stafar ekki af háttsemi leigutaka, mun leigusali annað hvort senda annað eintak af búnaði, eða endurgreiða leiguverð að hluta eða öllu leyti.
10. Endurgreiðslur
Leigutaki á aðeins rétt á endurgreiðslu leiguverðs ef búnaður reynist gallaður og gallinn verður ekki rakinn til leigutaka. Ekki er endurgreitt vegna rangrar notkunar eða afbókunar.
11. Afbókun
Afbókun af hálfu leigutaka veitir ekki rétt til endurgreiðslu nema sérstaklega sé samið um annað.
12. Riftun
Leigusala er heimilt að rifta samningi þessum einhliða og án nokkurs fyrirvara eða bótaskyldu og taka í sína vörslu búnað hvenær sem er á leigutímanum í eftirfarandi tilvikum:
- Þegar leigutaki hefur brotið gegn ákvæðum samnings þessa eða viðskiptaskilmálum eða
- þegar leigusali hefur rökstudda ástæðu til að ætla að leigutaki muni brjóta gegn ákvæðum samnings þessa eða viðskiptaskilmála.
Riftun veitir ekki rétt til endurgreiðslu á leiguverði.
13. Eignarréttur
Hinn leigði búnaður er eign leigusala. Leigutaki má ekki selja, leigja, veðsetja eða með nokkrum öðrum hætti afsala sér umráðum búnaðar. Leigutaki ber einnig fulla ábyrgð ef búnaður tapast eða honum er stolið úr vörslu hans. Ef leigusali glatar rétti til búnaðar vegna slíkra atvika þá ábyrgist leigutaki að greiða leigusala fullt endurstofnverð búnaðarins án tillits til aldurs eða slits á honum. Þar til nýr búnaður hefur verið útvegaður í stað þess sem leigusali glataði rétti til skal leigutaki borga fulla leigu, auk alls afleidds tjóns sem leigusali kann að verða fyrir vegna missis hins leigða búnaðar.
14. Takmörkun ábyrgðar
Leigusali er á engan hátt ábyrgur vegna slysa eða skemmda sem orsakast af notkun, meðferð eða flutningi á búnaði sem er í útleigu. Leigusali ber ekki ábyrgð á neinu óbeinu eða afleiddu tjóni sem leigutaki eða þriðji aðili kunna að verða fyrir.
Ábyrgð leigusala takmarkast við greidda leigu.
15. Lög og lögsaga
Samningur þessi skal lúta íslenskum lögum.
Komi upp ágreiningur sem aðilum tekst ekki að leysa úr í sátt skal hann borinn undir Héraðsdóm Reykjavíkur.
16. Undirritun
Samningur þessi er bindandi fyrir aðila við undirritun eða við bókun á þjónustu.
