FAQs
Hvernig get ég bókað
Hafðu samband, segðu okkur frá dagsetningunni þinni, staðsetningu og væntingum. Við við svörum um hæl!
Hversu langt er leigutímabilið
Almennt er það frá föstudegi til mánudags, en hafið samband fyrir aðra möguleika.
Getur hver sem er tekið upp með videovélinni?
Já, í raun og veru og það þarf alls ekki reynslu. Það þarf bara að slökkva og kveikja á upptökunni – og annars fylgja líka leiðbeiningar.
Hvað gerist ef upptökuvélin skemmist eða týnist?
Þú berð ábyrgð á því tjóni sem verður á meðan á leigutíma stendur. Greitt er tryggingagjald sem er endurgreitt ef allt er í lagi við skil.
Hvað má ég búast við að bíða í langan tíma eftir að fá samantektarmyndbandið?
Við skiljum vel að það sé mikil spenna að fá samantektarmyndbandið. Það tekur okkur um 4 vikur að vinna úr efninu þínu og skila til þín.
Hvað ef ég þarf aðra þjónustu en er í boði á síðunni?
Hafðu samband og við skoðum málið.
