Hvernig á að nota Panasonic 4k upptökuvélina:
Kveikja/slökkva
Með því að opna skjáinn þá kviknar á vélinni, og slökknar með því að loka.
Stillingar
Ekki þörf á að breyta neinu, vélin er forstillt. Aðdráttur/zoom er ofan á vélinni. Hægt er að tengja ljós eða mic við vélina ef þarf.
Batterí
Batteríin koma fullhlaðin, tilbúin í um 6klst. af tökum.
Minniskort
Það fylgja með 2x 128 Mb minniskort, fyrir um 6klst af tökum. Bara passa að týna þeim ekki!
Gerðu prufutöku
Prófaðu að taka upp, bara til að fá tilfinninguna fyrir vélinni. Prófaðu að skoða upptökuna á skjánum.
Upptökuhetjur
Það getur verið gott að vera búin að tilnefna upptökuhetjur, aðila sem taka upp ákveðna hluta, t.d. í athöfn ef brúðkaup. Annars er svo bara að láta skemmtilegt fólk um að framkvæma snilldina og láta boltann rúlla.
Eina sem má ekki
Allt efnið eyðist ef maður fer í „Settings – Format“, þannig að ekki gera það!
